Sunday, April 26, 2009

Nokkrar ástandsvísur

Ef að sleppa á Ísland hratt
út úr kreppumynstri,
er þá snjallt að stefni statt
og stöðugt allt til vinstri??

---

Ógnarvandi eitlar hér,
ullu klandri sóðar.
Nú til fjandans farin er
framtíð lands og þjóðar.

---

Í tilefni hugmynda um þau mótmæli að éta kjörseðilinn sinn:

Á þingmenn herjar hatrömm pest,
af hefð og gömlum vana.
Ef til vill er bara best
að borða kjörseðlana.

2 comments:

  1. Frábærar vísur hjá þér Daníel Jens.

    ReplyDelete
  2. Sandra Karen27.4.09

    Alveg sammála hr. Schram.

    Sú fyrsta er í uppáhaldi hjá mér :)

    ReplyDelete

Athugasemdir