Tuesday, February 24, 2009

Davíð í Kastljósinu

Ég held að allir - jafnvel römmustu Davíðshatarar - viðurkenni innst inni að Davíð stóð sig vel í Kastljósinu í gærkvöldi. Sérstaklega þóttu mér skemmtilegir nokkrir bútar, t.a.m. þessi:

Davíð: Það er sagt að Seðlabankinn sé rúinn trausti. Það er óskaplega auðvelt að segja þetta, ég gæti sagt að þú værir rúinn trausti og þyrfti ekkert að segja meira um það. Þú mundir örugglega segja af þér og hlaupa út er það ekki? Mundirðu gera það?
Sigmar: Ég get vísað í dáldið hatramma umræðu gagnvart Seðlabankanum og traustinu gagnvart honum, þú gætir kannski ekki gert það að sama skapi gagnvart mér.
Davíð: Jújú, þú hefur oft verið gagnrýndur mjög, hvernig þú hefur komið fram hér í þáttum.


Og þessi, eftir að Davíð hafði þulið hversu ítrekað Seðlabankinn varaði við því sem var í uppsiglingu:

Sigmar: En má ekki líka alveg stilla þessu þannig upp að sú staða sem upp var komin var vegna þess að þið brugðust í aðdragandanum?
Davíð: Hvenær?
Sigmar: Þið afnemið t.d. bindiskylduna eða minnkið hana stórlega, Seðlabankinn. Það gerði bönkunum kleift að vaxa á meiri hraða.
Davíð: Hvenær? Um hvaða bindiskyldulækkun ertu að tala?
Sigmar: Ég er að tala um þá bindiskyldulækkun sem var hérna fyrir nokkrum árum.
Davíð: 2003 ?
Sigmar: Já.
Davíð: 2003 ?
Sigmar: Já.
Davíð: Ég kom í bankann 2005.
---

Seðlabankinn rúinn trausti?

Í viðtalinu ræddu þeir félagar nokkuð um traust og þá aðallega rúið traust Seðlabankans. Þetta meinta rúna traust er jú aðalástæða þess að dýrlingurinn Jóhanna Sigurðardóttir vill losna við Davíð (með örþrifaráðinu lögum). En er Seðlabankinn rúinn trausti? Davíð benti í viðtalinu á þrennt:
1) Kreditkort Íslendinga, hvar sem þeir voru í heiminum, héldu áfram að verka þrátt fyrir að bankarnir hryndu. Það var vegna þess að Seðlabankinn ábyrgðist allar greiðslur allra Íslendinga og því var treyst.
2) Þegar átti að koma greiðslum til landsins eftir hrun þorði enginn að gera það í gegnum neitt bankakerfið, en allir treystu Seðlabankanum. Seðlabankinn hélt greiðslukerfinu við útlönd opnu.
3) Þegar greiðslur stöðvuðust til nýju bankanna höfðu seðlabankastjórarnir íslensku (Davíð, Ingimundur og Eiríkur) samband við erlenda seðlabanka og fengu þá til að þrýsta á aðra erlenda banka að skila greiðslum til Íslendinga. Þetta var gert - ergo: Seðlabanki Íslands naut trausts.

Við þetta má bæta því sem kom fram í fréttum í gær um Ingimund Friðriksson. Hann sagði á dögunum af sér embætti bankastjóra við Seðlabanka Íslands, enda ofbuðu honum þær aðfarir sem Jóhanna Sigurðardóttir gerði að honum og hans starfsheiðri í frægu bréfi þar sem hún fór fram á að seðlabankastjórar segðu af sér vegna þess gífurlega vantrausts sem í þeirra garð ríkti. (Jóhanna þakkaði honum í kjölfarið opinberlega samstarfsfýsi og skilningsríki, þrátt fyrir að hafa fengið bréf frá honum þar sem raunverulegar ástæður uppsagnar komu fram.) Nú, þegar Ingimundur er á lausu, hefur norski seðlabankinn samband við hann og býður honum stöðu við bankann vegna sérfræðiþekkingar hans á rekstri seðlabanka. Svo mikið var þá vantraustið. Ingimundur starfaði við Seðlabanka Íslands í 34 ár.

Monday, February 23, 2009

Það birtir til

Eins og þú sérð, lesandi góður, er komið nýtt og bjartara útlit á blogsíðuna mína. Þetta er gert fyrir þig, enda grunar mig að þú hafir verið orðinn eilítið þreyttur á þessum drungalega dökkbláa lit sem hefur verið ráðandi hingað til. Vitinn vinstra megin er í sérstöku uppáhaldi hjá mér, enda starfaði ég sem vitamálari fjögur sumur. Ég vona að þér falli breytingin jafnvel í geð og mér.

Einn '35-brandari að lokum í tilefni dagsins:

S j ó m a n n a s a g a:

Gamli skipstjórinn var allra mesti harðstjóri og drabbari og því illa liðinn af öllum skipverjum. Eitt sinn er skip hans lá í höfn í hitabeltinu, kom hann fullur um borð eitt kvöldið og datt í sjóinn. Þar var krökkt af hákörlum. Jens háseti sá ófarir skipstjórans af tilviljun og gat loksins draslað honum heilum á hófi um borð.

„Hvernig á ég nú að þakka þér þetta, Jens minn góður“, mælti skipstjóri hrærður og leit skelkaður ofan í kolsvartan sjóinn.

„Blessaður, þú mátt bara ekki segja eitt orð um þetta við hina piltana, því að þá berja þeir mig til óbóta“, svaraði Jens dauðhræddur.

Tuesday, February 03, 2009

Obama og Jóbama

Nýr leiðtogi Íslendinga í kreppubaráttunni er Jóhanna Sigurðardóttir, eins og varla hefur farið fram hjá neinum. Fyrir skemmstu eignuðust Bandaríkjamenn einnig nýjan leiðtoga - Obama - sem ku ekki heldur hafa farið fram hjá neinum. Sumir hafa í ljósi þessara aðstæðna gripið þann brandara á lofti að líkja þeim tveimur saman og kalla þau Obama og Jóbama - komin til bjargar Bandaríkjunum og Íslandi. Kannski á þessi samlíking alveg rétt á sér, enda þarf ekkert að vera að þau séu svo ólík, svona fyrir utan litarhaft (O svartur - J hvít), kyn (O karl, J kona) og menntun (O með ágætiseinkunn í lögum frá Harvard, J verslunarpróf frá VÍ og flugfreyjunámskeið).


Hér er annar brandari, töluvert fyndnari og eldri (úr Nýjum kvöldvökum 1935):

- Þakka þér fyrir afmælisgjöfina, frændi.
- Ekkert að þakka, það var svo lítið.
- Það fannst mér líka, en mamma sagði að ég skyldi samt þakka þér fyrir.