Monday, December 15, 2008

Snúinn aftur

Kæru vinir - ég fann passwordið að þessum blogaðgangi, en það hefur verið týnt svo árum skiptir. Til þess þurfti ég að beita mjög grófri aðferð og verður ekki nánar farið út í það hér.

En það sem máli skiptir er að frá og með komandi áramótum hygg ég á bloggmennsku hér á steindi.blogspot.com. Mun ég samhliða láta af þeirri villu að blogga á vefsvæðinu bloggar.is, þar sem ég hef undanfarið haldið úti síðunni steindi.bloggar.is.

Fréttatilkynning um málið hefur verið send helstu fjölmiðlum landsins.