Tuesday, June 09, 2009

Skáldið, sem nennt'ekk'að yrkja

Það er gæfa að fá að starfa við eitthvað sem manni finnst skemmtilegt. Þannig hef ég alltaf öfundað atvinnuíþróttamenn, t.d. Tiger Woods. Margir eru hins vegar í þeirri stöðu að finnast leiðinlegt í vinnunni. T.d. mætti ímynda sér skáld, sem finnst leiðinlegt að yrkja. Þetta óheppna skáld gæti e.t.v. komið hugsunum sínum á blað e-n veginn svona:


Nú get ég ekki orða bundist.
Ó, mér hefur lengi fundist
erfitt hug minn visna að virkja -
verða sífellt meir að yrkja.
Mér það vekur vondan leiða
að vaða stuðladjúpið breiða.
Grafa í mosagróna þanka -
grípa í tóman orðabanka.
Sí og æ með orð að bruðla,
en sú mæða að finna stuðla,
afla ríms og réttra orða
úr ræfilslegum orðaforða.
Ég alla daga veð í villu
á verulega rangri hillu,

því fátt er leiðinlegra en það
að láta stuðlað rím á blað.

3 comments:

  1. Þórir9.6.09

    Haha, svona ljóð kann ég að meta! ;)

    ReplyDelete
  2. Þetta er eitt besta hrós, sem ég hef fengið, enda man ég frá fornu fari að Þórir kann sko ekki að meta öll ljóð!

    ReplyDelete
  3. HAHAHA, já þeir segja að bestu ljóðin séu ort af ástríðu, þetta hér hefði sennilega komið dapra höfundinum á blað! glæsilegt

    ReplyDelete

Athugasemdir