Monday, February 22, 2010

Skáldið frá Fagraskógi

I

Um aldir skulu lifa í manna minnum
máttug kvæðin, fyrir vorum sýnum.
Engum dylst að friðinn enn vér finnum
í fegurst kveðnu skáldaverkum þínum.

Því dís frá himnum hörpu þína snerti
og huga þínum veitti blessun sína.
Þótt yrðu til við ljós frá litlu kerti,
ljóð þín fengu sólu til að skína.

Til himins sveifstu, svörtum fjöðrum þöndum
og sóttir mátt og styrk hjá anda merkum.
Og fátæk orð, þau urðu í þínum höndum
að undurfögrum, dáðum listaverkum.

II

Þótt sumir beindu að þér aumum rógi
og illmælum - það dugði ei nokkuð til. -
Svo fékk þinn andi af Fjölnis merka plógi
að frægðarverk þín mynda engin skil.
Þau lifa ennþá, skáld frá Fagraskógi,
og skapa vorum hjörtum varman yl.

Þótt farinn sértu man þig minnug þjóðin.
Hún man þig, sem þú værir hér í gær.
Því eitt er víst, að lengi lifir glóðin
og lífsins heiti, fagurrauði blær,
sem okkur færðu leikrit þín og ljóðin.
Enn lýsir stjarnan þín, svo undurskær.

Hún sendir frá sér geisla þann, er glitrar
og græðir jafnvel dýpstu hjartasár.
Og þerrir lítinn dropa, sem að sytrar
um sálarinnar myrku ólgugjár.
Og ef sá dropi enn á hvarmi titrar,
þá er hann bara lítið gleðitár.

III

Þú ortir ljóð um fagran Eyjafjörð
og fræ, sem urðu að deyja í grýttri jörð.
Um dalakofa og hvíta tjarnarálft,
um Katarínu - og um lífið sjálft.

Og sólin hefur sálu þína kysst,
og sál þín fékk að kynnast þeirri list
sem situr hátt við himnaríkis borð,
og hönd þín færði listina í orð.

Og þjóðin hefur þína strengi snert,
og þjóðin hefur einstakt starf þitt erft.
Því þú ert fræ, sem hlaust þann helga dóm
að hafna í jörð og verða eilíft blóm.

2 comments:

  1. Anonymous12.5.10

    Hvað get ég sagt - hvaða orð skal nota,
    hvar get ég lagt að fólkinu sprota.
    Lesið og lærið þennan dreng,
    og lifið með honum fagran streng.

    Hann skrifar um höfund sem var,
    skáld heillar þjóðar.
    Er hann núna okkar svar,
    við svörtum söndum ljóða?

    J.

    ReplyDelete
  2. Anonymous21.11.10

    Glæsilegt!

    ReplyDelete

Athugasemdir